flugfréttir
Flugmennirnir voru sérstaklega þjálfaðir í að lenda í Kathmandu
- Flugfélagið og flugmálayfirvöld í Nepal benda á hvorn annan
Airbus A320 þota í flugtaki á flugvellinum í Kathmandu í baksýn við flak Bombardier Q400 vélarinnar
Flugfélagið US Bangla-Airlines hefur gefið frá sér yfirlýsingu í kjölfar flugslyssins í Kathmandu sl. mánudag þar sem meðal annars kemur fram að flugmennirnir, sem flugu vélinni, hafi verið sérstaklega þjálfaðir til þess að lenda á flugvellinum í Kathmandu.
Flugfélagið og flugmálayfirvöld í Kathmandu hafa sakað hvort annað um hvernig fór í kjölfar
slyssins sem var versta flugslysið í Nepal í 26 ár eða frá því farþegaþota af gerðinni Airbus A300 frá PIA (Pakistan
International Airlines) fórst í aðflugi árið 1992 með þeim afleiðingum að 167 létu lífið.
Flugstjóri Bombardier Dash 8 Q400 vélarinnar hét Abid Sultan og var hann mjög reyndur
flugmaður sem var vel kunnugur flugvellinum í Kathmandu og hafði hann lent oftar en 100
sinnum á flugvellinum.
Flugstjórinn með yfir 5.000 flugtíma að baki
Sultan, sem var með yfir 5.000 flugtíma að baki, var fyrrverandi herflugmaður og flaug hann
í flughernum í Bangladesh
Aðstoðarflugmaðurinn Prithula Rashid hafði fengið sérstaka þjálfun í að lenda á Kathmandu-flugvellinum
og hafði hann lent flugvélum félagsins oft áður í Kathmandu.
US-Bangla Airlines telur að röng skilaboð frá flugturni hafi orsakað flugslysið en daginn eftir
flugslysið voru birtar hljóðupptökur með 25 mínútna löngu samtali milli flugumferðarstjóra
og flugmannanna þar sem heyra má glögt að mikill ruglingur átti sér stað varðandi þá flugbraut
sem þeir áttu að lenda á.
Flugfélagið vill ekki tjá sig varðandi þær upptökur en tekur fram að það varði við lög
að birta upptökur úr flugturni og gera þær opinberar.
Bombardier hefur sent tvo sérfræðinga á sínum vegum til Nepal og lögðu þeir af stað
frá Kanada sl. þriðjudag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.