flugfréttir

Emirates fær leyfi fyrir flugi frá Barcelona til Mexíkó

15. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:41

Airbus A380 risaþota Emirates á flugvellinum í El Prat flugvellinum í Barcelona

Emirates hefur fengið leyfi til þess að fljúga milli Spánar og Mexíkó og mun félagið í kjölfar þess hefja flug frá Barcelona til Mexíkóborgar.

Barcelona verður þriðja Evrópuborgin sem Emirates mun fljúga frá yfir Atlantshafið og mun flugfélagið notfæra sér loftferðasamning sem kveður á um svokallaðan „fimmta rétt“.

Frá árinu 2016 hafa verið sögusagnir um að Emirates ætlaði sér að fljúga frá Dubai til Mexíkóborgar með viðkomu í Barcelona en eftir opinbera heimsókn Julio Gómez-Pomar, iðnaðar- og samgönguráðherra Spánar, til Dubai á dögunum þá hefur komið í ljós að samningar hafa náðst um leyfisveitinguna til Emirates.

Leyfið var veitt á grundvelli þess að vel hefur farið á milli Spánar og Sameinuðu arabísku furstadæmanna er kemur að flugmálum og er leyfið einnig veitt í fullu samráði við Iberia og AeroMexico sem eru þau flugfélög sem fljúga nú þegar milli Spánar og Mexíkó.

Ómögulegt fyrir Emirates að fljúga beint flug til Mexíkó

Ómögulegt væri fyrir Emirates að fljúga til Mexíkóborgar í beinu flugi þar sem flugleiðin er 14.346 kílómetra löng sem væri krefjandi fyrir Airbus A380 risaþotuna sem flýgur í dag 12.202 kílómetra til að komast til Auckland á Nýja-Sjálandi.

Annað vandamálið er að Benito Juárez-flugvöllirinn í Mexíkóborg er staðsettur í 7.300 feta hæð yfir sjávarmáli en þar sem loftið þar er mjög þunnt sökum hæðar auk heits loftlags þá væri erfitt fyrir farþegaþotu að takast á loft með allt það eldsneyti sem til þarf til þess að fljúga 14 þúsund kílómetra langa flugleið.

Þar af leiðandi er nauðsynlegt að hafa viðdvöl til að taka eldsneyti og ákvað Emirates því að bjóða upp á tengiflug í gegnum aðra borg á leiðinni og varð Barcelona fyrir valinu.

Barcelona verður þriðja borgin sem Emirates mun fljúga frá til Ameríku en félagið hefur frá árinu 2013 flogið frá Dubai til Mílanó og þaðan áfram til JFK-flugvallarins í New York auk þess sem félagið byrjaði fyrir ári síðan að fljúga frá Aþenu til Newark-flugvallarins í Bandaríkjunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga