flugfréttir

Fjögur tonn af demöntum og gulli féllu til jarðar í flugtaki

- Gat kom á frakthurð á Antonov An-12 flugvél í flugtaki í Síberíu

15. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:35

Gullstöngunum ringdi yfir flugbrautina á flugvellinum í Yakutsk

Um 3.4 tonn af gulli, gimsteinum, platinum og demöntum rigndi yfir flugbrautina í borginni Yakutia í Síberíu eftir að flugvél af gerðinni Antonov An-12 missti frakt frá borði í flugtaki eftir að gat kom á frakthurð undir skrokknum.

Flugvélin, sem var frá Nimbus Airlines, var í flugtaki á leið til Krasnoyarsk þegar hluti af frakthlera og klæðningu undir skrokk vélarinnar gaf sig með þeim afleiðingum að þriðjungur varningsins um borð féll til jarðar þegar vélin var að hafa sig á loft.

Mestmegnið af fraktinni voru dýrustu eðalmálmar heims og þar á meðal gull, platínum og mikið magn demanta en gullstangirnar voru enn að dreyfast frá borði er vélin var í flugtaksklifrinu og fundust gullstangir á víð og dreif í 26 kílómetra fjarlægð frá borginni Yakutsk.

Farmurinn var í eigu fyrirtækisins CHSC Chukota Mining and Geological Company sem sérhæfir sig í námugreftri í gullnámum í Síberíu.

Á fjórða tonn af gulli var um borð í vélinni

Flugmenn vélarinnar ákváðu að lenda í borginni Margan þegar upp komst um atvikið en lögreglan í Yakutsk hefur handtekið þá starfsmenn flugvallarins sem komu fraktinni fyrir um borð í vélina.

Aðeins lögregla og leyniþjónustan fengu að taka þátt í leitinni

Lögregla girti af svæðið umsvifalaust þegar í ljós hvað hafði gerst og fengu aðeins leyniþjónustumenn að taka þátt í leitinni til að tryggja að óprúttnir aðilar myndu ekki stinga á sig gulli eða demöntum.

Ekki er vitað hvort að um slys hafi verið að ræða eða hvort að einhverjir aðilar hafi staðið að þessu í misheppnaðri tilraun til að komast yfir hinn verðmæta varning.

Engan sakaði í þessu óvenjulega atviki og ekki vitað til að neinn hafi fengið gullstöng í höfuðið á jörðu niðri en lögreglu hefur tekist að týna saman 172 gullstangir.

Rússneska dagblaðið The Siberian Times segir að veðurspáin í dag geri ráð fyrir -21°C frosti og búast megi við gullregni auk þess sem demantar gætu fallið til jarðar.

Farmurinn er metin á 36 milljarða króna en ekki kemur fram hvort það sé andvirði þess sem féll frá borði eða verðmæti alls farmsins um borð.

Fleiri myndir:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga