flugfréttir

Narita-flugvöllur í Tókýó fær þriðju flugbrautina

- Opnunartími fyrir flugumferð verður einnig lengdur

16. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:57

Sátt hefur náðst við íbúa í nærliggjandi hverfum um þriðju flugbrautina fyrir Narita-flugvöllinn í Tókýó

Narita-flugvöllurinn í Tókýó hefur fengið leyfi fyrir þriðju flugbrautinni auk þess sem japönskum flugmálayfirvöldum hafa gefið flugvellinum leyfi til þess að vera starfræktur lengur fram á nótt og opna einnig fyrir flugumferð fyrr á morgnanna.

Hingað til hefur flugvélum ekki verið leyft að taka á loft og lenda fyrr en klukkan 6:00 á morgnanna og eftir klukkan 23:00 á kvöldin en eftir breytinguna getur flugumferð farið um flugvöllinn frá kl. 5:00 og fram til klukkan 00:30.

Sá tími sem fugvélar geta því farið um Nartia-flugvöll eykst því um 2:30 klukkustundir en þetta er í fyrsta sinn í 40 ár sem opnunartíma flugvallarins breytist en ekki hefur verið hreyft við honum frá árinu 1978.

Þá hefur verið gefið grænt ljós fyrir þriðju flugbrautinni sem verður 3.500 metrar á lengd auk þess sem önnur flugbrautin, 16L/34R, verður lengd um 1.000 metra eða frá 2.500 metrum upp í 3.500 metra.

Frá Narita-flugvellinum í Tókýó

Lenging brautarinnar verður lokið árið 2020 en þriðja flugbrautin verður þó ekki tilbúin fyrr en eftir áratug en eftir það mun Narita-flugvöllur geta tekið við 500.000 flugtökum og lendingum á ári í stað 300.000 í dag.

Árið 2017 fóru 40.7 milljónir farþega um Narita-flugvöll sem er annar stærsti flugvöllurinn í Japan á eftir Haneda-flugvellinum og sá 48. stærsti í heimi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga