flugfréttir

Flugvél lenti ofan á annarri flugvél í Flórída

18. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 23:51

Flugvélarnar tvær skömmu eftir óhappið á Palatka-Kay Larkin flugvellinum sl. föstudag

Undarlegt atvik átti sér stað í Flórída sl. föstudag er eins hreyfils flugvél af gerðinni Cirrus SR20 kom inn til lendingar og endaði ofan á annarri Cirrus-flugvél af gerðinni SR22 sem var nýlent á flugvellinum.

Atvikið átti sér stað á Palatka-Kay Larkin flugvellinum, skammt suður af Jacksonville, en Cirrus SR20 vélin hafði lenti á flugvellinum á braut 27 þegar hin fylgdi henni fast á eftir en báðar höfðu þær verið í aðflugi að sömu brautinni.

Palatka-Kay Larkin flugvöllurinn er óstjórnaður flugvöllur og er því enginn flugumferðarstjóri sem stjórnar flugumferðinni um völlinn og verða flugmenn því að tala sig saman á tíðinni til að forðast árekstrarhættu.

„Við tölum saman í radíóinu en það er ekki einu sinni krafa fyrir óstjórnaða flugvelli. Það getur hver sem er lent hérna og viðkomandi flugvél þarf ekki einu sinni að hafa rafkerfi um borð. Þannig að þú þarft þá bara að gæta að annarri umferð“, segir Cary Green, flugmaður sem flýgur reglulega um Palatka-Kay Larkin flugvöllinn.

Flugmaður Cirrus SR22 vélarinnar var 29 ára og var hann einn um borð en í Cirrus SR20 vélinni var flugmaður um fertugt sem var með einn farþega með sér. Allir sluppu með minniháttar skrámur frá slysinu.

„SR20 lenti fyrst og svo kom SR22 flugvélin og endaði ofan á hinni“, segir í yfirlýsingu frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) sem rannsaka atvikið.

Flugvöllurinn er mikið notaður fyrir kennsluflug en önnur flugvélin er skráð hjá Aerosim Academy sem er flugskóli í Sanford í Flórída.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga