flugfréttir

United sendir þrjá hunda með röngu flugi á einni viku

- Hundur sem átti að fara til Kansas City endaði í Japan

19. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:18

Talsmaður United Airlines sagði að fljótlegasta leiðin til að koma hundinum til fjölskyldunnar var að láta flugmennina fljúga af leið og halda til Akron í Ohio

Aftur kom upp atvik hjá United Airlines þar sem hundur kemur við sögu en sl. fimmtudag þurfi ein farþegaþota félagsins að fljúga af leið og lenda á öðrum flugvelli eftir að í ljós kom að félagið hafði sett hund um borð sem átti að fara með allt annarri flugvél.

Vélin var á leið frá Newark-flugvellinum til St. Louis en hundurinn átti hinsvegar að fara til eiganda síns í Akron í Ohio en var óvart komið fyrir í rangri flugvél.

Þegar upp komst um mistökin var ákveðið að fljótlegasta leiðin væri að beygja af leið og lenda í Akron til að koma hundinum til skila.

Flugferðin, sem vanalega tekur um tvær klukkustundir, tók hinsvegar fjóra klukkustundir þar sem vélin var í 1:30 klst á flugvellinum í Akron eftir lendingu.

Þetta er þriðja „hundaatvikið“ hjá United Airlines á einni viku en fyrir helgi drapst hvolpur um borð í farþegaþotu félagsins sem flaug frá Houston til New York eftir að flugfreyja kom hundinum fyrir í handfarangursgeymslu.

Þá ruglaði United Airlines óvart saman tveimur hundum sem fóru á sitthvorn staðinn en fjölskylda ein, sem var að flytja til Wichita frá Salem, flaug frá Portland til Kansas City ásamt heimilishundinum sem er þýskur Shepherd hundur.

Þegar fjölskyldan ætlaði að sækja hundinn kom hinsvegar hundur af tegundinni Stóri-Dan út úr búrinu en hundurinn þeirra hafði óvart verið komið fyrir um borð í þotu sem flaug til Japans.

United hefur komið öllum hundunum til skila í dag en það tók þó nokkra daga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga