flugfréttir
Fyrsta A380 risaþotan fyrir ANA á leið í samsetningu
Einingarnar fyrir fyrstu risaþotu ANA (All Nippon Airways) komnar til verksmiðju Airbus í Toulouse í Frakklandi
Samsetning á fyrstu Airbus A380 risaþotunni fyrir japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) mun hefjast í næsta mánuði.
Aðaleiningar skrokk risaþotunnar komu á dögunum til Toulouse eftir að hafa verið ferjaðir
með vöruflutningabílum hina frægu leið sem liggur gegnum þröngar götur þorpsins Levignac.
ANA mun taka við risaþotunni árið 2019 en flugfélagið japanska pantaði þrjár
Airbus A380 árið 2016 og verða þær afhentar í mars, júní og í september á næsta ári.
ANA tók við pöntun sem Skymark Airlines lagði inn til Airbus sem hefði orðið
fyrsta japanska flugfélagið til að fljúga risaþotunni þar í landi en hætt var við pöntunina árið 2014, skömmu
áður en félagið varð gjaldþrota.
ANA ætlar að nota fyrstu risaþotuna í áætlunarflugi milli Tókýó og Honolulu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.