flugfréttir
Airbus A321LR flaug sitt lengsta flug í 11 klukkustundir
- Lagði að baki 7.600 kílómetra frá Seychelleseyjum til Toulouse
Tilraunaflugið frá Seychelleseyjum til Toulouse var fimmtánda flug Airbus A321LR þotunnar
Nýja Airbus A321LR þotan hefur slegið annað langflugsmet er tilraunaflugvélin flaug beint flug á dögunum frá Seychelleseyjum í Indlandshafi til Toulouse í Frakklandi.
Bein flugleið milli Mahe á Seychelleseyjum og Toulouse er 7.600 kílómetrar og var flugtíminn um
11 klukkustundir en þetta er lengsta flug sem Airbus A321LR þotan hefur flogið hingað til.
Um borð í vélinni var þyngd á við 162 farþega og voru með í fluginu fimm manna áhöfn og ellefu
flugvirkjar en vélin fór í loftið frá Mahe klukkan 21:00 þann 29. mars að staðartíma og var
lent í Toulouse klukkan 6:00 að morgni 30. mars.
Flugleiðin lá frá Seychelleseyjum vestur að strönd Sómalíu og þaðan var flogið yfir Eþíópíu, Súdan,
Egyptaland og norðvestur yfir Miðjarðarhafið, yfir Ítalíu og Korsíku.
Gerðar voru tilraunir með farþegarými auk þess sem eldsneytiskerfið var prófað fyrir langflug en
í næstu prófunum verður vélinni flogið til Kiruna í Svíþjóð þar sem tilraunir verða gerðar
með hámarksflugtaksþunga í köldu veðri.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.