flugfréttir
„A380 hefur yfirburða kosti fram yfir tveggja hreyfla þotur“
Tim Clark, forstjóri Emirates
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að Airbus A380 risaþotan hafi töluverða yfirburði yfir tveggja hreyfla þotur og segir Clark að risaþotan nái að uppfylla kröfur sem engin önnur þota gæti náð að uppfylla.
Clark ræddi um risaþotuna á Aircraft Interiors Expo sýningunni sem fram fór í Hamborg og segir
hann að þrátt fyrir mikla byltingu er kemur að þægindum fyrir farþega um borð í nýjum þotum á borð við
Airbus A350 og Boeing 787 þá komist þær ekki með tærnar þar sem risaþotan hefur hælana.
Það er hægt að bjóða upp á mun glæsilegra farþegarými í Airbus A380 því að plássið er til staðar.
„Það má bjóða upp á mikil þægindi í löngu flugi um borð í Boeing 787-9 og Airbus A350-900LR og hvað sem það nú heitir en það breytir því ekki að þetta
eru tveggja hreyfla þotur“, segir Clark.
Clark segir að það komi alltaf á óvart hvernig Emirates nær að gera risaþotuflug með A380 hagkvæmt svo það skili
hagnaði en mörg flugfélög hafa ekki viljað taka risaþotuna í notkun þar sem þau telja hana of stóra og óhagkvæma.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.