flugfréttir

Icelandair flaug jómfrúarflugið með Boeing 737 MAX í kvöld

- Fyrsta farþegaflug Icelandair með nýrri þotu beint úr verksmiðju í 28 ár

13. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:09

TF-ICE, „Jökulsárlón“, er núna á leiðinni til Newark í Bandaríkjunum í jómfrúarfluginu / Ljósmynd: Emil Georgsson

Jómfrúarflug Icelandair með fyrstu Boeing 737 MAX þotunni hóf sig á loft í kvöld klukkan 18:37 frá Keflavíkurflugvelli.

Það er TF-ICE sem flýgur jómfrúarflugið sem er fyrsta áætlunarflug Icelandair með þessari flugvélategund en vélin hefur fengið nafnið „Jökulsárlón“.

Segja má að brotið sé blað í sögu Icelandair þar sem um er að ræða fyrsta flugið með nýrri þotutegund sem kemur beint úr verksmiðju í 28 ár en árið 1990 fékk félagið afhent fyrsta eintakið af Boeing 757-200 sem hefur verið burðarásinn í sögu félagsins í tæpa þrjá áratugi.

TF-ICE er á þessu augnarbliki (klukkan 22:18) í 36.000 fetum yfir Quebec á leið til Newark-Liberty flugvallarins í New Jersey.

Jómfrúarfluginu seinkaði um viku

Upphaflega var jómfrúarflugið áætlað sl. föstudag, þann 6. apríl, til Berlínar en fram hefur komið að seinkun varð á fyrsta fluginu vegna pappírsvinnu hjá flugmálayfirvöldum þar sem verið er að skrá nýja tegund af flugvél til landsins.

Töluverð eftirvænting hefur verið eftir fyrsta flugi Icelandair með Boeing 737 MAX og hafa sumir flugáhugamenn á samfélagsíðum á Facebook á borð við Fróðleiksmola um flug og á Flugnördum beðið með eftirvæntingu eftir fyrsta fluginu.

TF-ICE á Flightradar24.com klukkan 21:52 í kvöld

Nokkrum sinnum í þessari viku hefur fyrsta flugið með Boeing 737 MAX verið skráð á flugáætlun til mismunandi áfangastaða en því svo verið skipt út fyrir Boeing 757-200 þegar nær dregur brottför.

Í dag var lokið við að ganga frá þeim leyfum sem til þarf og var TF-ICE því klár í fyrsta flugið og er áætluð koma til Newark-Liberty flugvallarins klukkan 20:00 að austurstrandartíma eða á miðnætti í kvöld að íslenskum tíma.

TF-ICE mun leggja af stað til baka til Keflavíkur sem flug FI622 um hálftvö leytið í nótt og er áætluð koma til landsins klukkan 6:57 í fyrramálið.

Á morgun, 14. apríl, mun TF-ICE fara í sérstakt útsýnisflug frá Reykjavíkurflugvelli og eru áhugasamir hvattir til þess að horfa til himins ef þeir vilja berja Boeing 737 MAX augum yfir höfuðborginni.

Hinar tvær Boeing 737 MAX þoturnar á Keflavíkurflugvelli, TF-ICY og TF-ICU







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga