flugfréttir

Hóf sig á loft á meðan önnur flugvél var enn á brautinni

16. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:00

Boeing 737-800 þota Gol Linhas Aéreas í flugtaki á flugvellinum í Recife

Flugmálayfirvöld í Brasilíu rannsaka nú atviki sem átti sér stað á flugvellinum í borginni Brasilia er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 hóf sig á loft frá flugvellinum í höfuðborg landsins á meðan önnur flugvélar, sem var nýlent á vellinum, var ekki búin að yfirgefa brautina.

Boeing 737-800 þotan, sem er frá flugfélaginu Gol Linhas Aéreas, var í flugtaksbruni þegar flugmenn vélarinnar komu auga á herflugvél sem var enn á brautinni eftir lendingu.

Þotan hélt flugtakinu áfram og hóf sig á loft og fór mjög nálægt yfir herflugvélina sem var að yfirgefa brautina en sú flugvél var af gerðinni Embraer C-95 Bandeirante.

Flugmenn Boeing 737 þotunnar komu ekki auga á herflugvélina er þeir hófu flugtak vegna bogalögun brautarinnar þar sem flugbrautarendinn öðrum meginn liggur lægra yfir sjávarmáli.

Flugmennirnir komu svo auga á flugvélina þegar þeir nálguðustu hæðsta punkt brautarinnar en þá var þotan kom á of mikinn hraða til að stöðva flugtakið og komin yfir V1 hraða.

Fram kemur að herflugvélin hafði ekki yfirgefið brautina þar sem flugmennirnir voru í vandræðum með að finna þá akbraut sem þeim var sagt að fara inn á eftir lendingu.

Brasilísk flugmálayfirvöld flokka atvikið sem mjög alvarlegt atvik og er það nú til rannsóknar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga