flugfréttir
Tveir nýir forstöðumenn ráðnir til Icelandair
Fannar Eðvaldsson hefur verið ráðinn forstöðumaður framlínu og María Stefánsdóttir sem forstöðumaður hjá Viðskiptaþróunar- og stefnumótunarsviði Icelandair
Tveir nýir forstöðumenn hafa verið ráðnir til starfa hjá Icelandair sem taka við sitthvorri deildinni.
Fannar Eðvaldsson hefur verið ráðinn forstöðumaður framlínu, þeirrar þjónustu Icelandair sem snýr að beinum samskiptum við viðskiptavini félagsins.
Fannar var deildarstjóri í farþegaþjónustu hjá Airport Associates á Keflavíkurflugvelli og þar á undan í nokkur ár sem deildarstjóri í þjónustuveri Símans. Fannar er með B.s. gráðu í viðskiptafræði. Maki er Diljá Pálsdóttir og hann á eina dóttur.
María Stefánsdóttir hefur hafið störf sem forstöðumaður vöruþróunar sem er ný eining á Viðskiptaþróunar- og stefnumótunarsviði Icelandair.
María mun leiða mótun og rekstur vöruþróunar í samstarfi við aðrar einingar fyrirtækisins en María kemur frá Símanum þar sem hún var síðast forstöðumaður
einstaklingssölu og hafði hún gengt mismunandi stjórnunarstörfum hjá Símanum í samanlagt 11 ár.
Einnig starfaði María sem rekstrarstjóri Kaupþing Edge og sem markaðsstjóri hjá Creditinfo Group í Þýskalandi.
María er með BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og Can.Sci.Pol í alþjóðastjórnmálum frá Kaupmannahafnarháskóla. Hún á 3 börn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.