flugfréttir

Takmarkanir á Trent 1000 mun gera flugfélögum erfitt fyrir

- Tíðari skoðanir og skert ETOPS vegna vandamála hjá Rolls-Royce

17. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:22

Trent 1000 hreyfill frá Rolls-Royce

Takmarkanir hafa verið settar á notkun Trent 1000 hreyfilsins frá Rolls-Royce og hafa flugmálayfirvöld farið fram á tíðari skoðanir á hreyflinum.

Þetta var tilkynnt fyrir helgi í kjölfar vandamála sem upp hafa komið með Trent 1000 hreyfilinn en í ljós hefur komið að endingartími hreyflablaðanna er ekki nærri því eins mikill og gert var ráð fyrir og hafa smágerðar sprungur komið fram í blöðunum.

Þau flugfélög sem hafa Boeing 787 farþegaþotur sem koma með Trent 1000 hreyflinum gætu átt von á töluverðum röskunum og töfum er kemur að flugrekstri vegna þessa og gætu sum þeirra þurft að breyta flugleiðum eða nota aðrar farþegaþotur tímabundið.

Þá stefnir í að fjarflugsleyfi (ETOPS) þeirra Boeing 787 þotna, sem hafa Trent 1000 hreyfla, verði skert úr 330 mínútum niður í 140 mínútur sem þýðir að viðkomandi þotur þurfa að halda sig nær næsta varaflugvelli á langflugi og nær landi á flugi yfir úthöf sem skerðir langflugshæfni vélarinnar töluvert.

Með því þarf flugvél að taka á sig krók til að halda sig innan lágmarksfjarlægðar frá næsta flugvelli og getur því ekki flogið eins beina leið frá brottfararstað til áfangastaðar sem lengir flugleiðina töluvert.

Vandamálið varðar Trent 1000 hreyfla með Package C þjöppurými og nær vandamálið því ekki til þeirra flugvéla sem hafa Trent 1000 Package B eða Trent 1000 TEN hreyfla.

Air New Zealand er eitt þeirra flugfélaga sem hafa orðið fyrir barðinu á vandamálinu með Trent 1000 hreyfilinn

Í dag eru 380 Trent 1000 Package C hreyflar í notkun og mun vandamálið því snerta flugfélög á borð við Thai Airways, Air Europa, Avianca, Ehtiopian Airlines, LOT Polish Airlines, Norwegian, Air New Zealand, British Airways, LATAM og Virgin Atlantic.

Þá er farið fram á mun tíðari skoðanir og segir í yfirlýsingu frá flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) að viðkomandi Trent 1000 hreyflar verði skoðaðir eftir hverja 80 flugferðir í stað þess að þeir séu athugaðir eftir hverja 200 ferðir.

Aðili, sem er kunnugur málinu, segir að tíðari skoðanir á hreyflinum eigi eftir að valda flugfélögum meiri erfiðleikum en skerðing á ETOPS.

Vegna vandamálsins hafa Dreamliner-þotur British Airways og Virgin Atlantic þurft að fara oftar í skoðun og viðgerð en vandamálið með Trent 1000 hreyflana kostaði Rolls-Royce 31 milljarð króna í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga