flugfréttir

Hreyfill sprakk á þotu frá Southwest í 31.000 fetum

- Ein kona slösuð eftir að hafa fengið flísar og sogast að glugganum

17. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:11

Þotan var í 31.000 fetum þegar sprenging kom upp í vinstri hreyfli vélarinnar

Að minnsta kosti einn farþegi er slasaður eftir að sprenging kom upp í hreyfli á farþegaþotu frá Southwest Airlines af gerðinni Boeing 737-700 sem var í innanlandsflugi í dag í Bandaríkjunum.

Þotan var í áætlunarflugi frá LaGuardia-flugvellinum í New York til Dallas Love Field þegar sprenging kom upp í vinstri hreyfli vélarinnar en brak úr hreyflinum fór í gegnum skrokk vélarinnar og var ein kona, sem sat við gluggann, sem fékk flísar í sig auk þess sem hún sogaðist að gluggannum og var föst í falsinu.

Samkvæmt Flightradar24.com þá hafði flugvélin náð 31.000 fetum eftir flugtak frá LGA yfir Pennsylvania er atvikið átti sér stað klukkan 15:00 í dag að íslenskum tíma.

Hreyfill vélarinnar eftir lendingu á flugvellinum í
Philadelphia

Flugmenn vélarinnar flugu af leið og var haldið til Philadelphia þar sem vélin lenti 20 mínútum síðar eða klukkan 15:23 að íslenskum tíma.

Boeing 737-700 þotur Southwest Airlines koma með CFM56 hreyflum frá CFM International en flugmennirnir lækkuðu flugið með miklum lóðréttum hraða til þess að koma sér niður í örugga flughæð þar sem farþegarýmið var ekki lengur þrýstingsjafnað og súrefnisskortur gerir vart við sig mjög fljótt.

Einn farþegi um borð segir að súrefnisgrímur hefðu fallið strax niður en vélin lenti giftusamlega í Philadelphia og fóru farþegar frá borði niður um stigabíla og voru uppblásnar neyðarrennibrautir ekki notaðar.

Fjölmiðlar vestanhafs hafa verið að sýna beina útsendingu frá flugvellinum þar sem farþegar eru að fara frá borði en a.m.k. einn hefur verið fluttur á sjúkrahús og er talið að það hafi verið konan sem fékk flísar í sig frá brakinu sem kom í gegnum skrokkinn.

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) segir að verið sé að safna upplýsingum um atvikið en um borð voru 143 farþegar og kemur fram að flugvélin sé 18 ára gömul, smíðuð árið 2000.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga