flugfréttir

Avinor vill ekki malbika alla flugbrautina í Røros

- Hafa áhyggjur af því að stærri flugvélar en Dash 8 geta ekki lent á vellinum

17. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:11

Frá flugvellinum í norska bænum Røros

Flugrekstaraðilar í miðhluta Noregs hafa áhyggjur af sparnaðaraðgerðum norska flugumferðarþjónustufyrirtækisins Avinor sem ætlar sér ekki að endurnýja alla flugbrautina á flugvellinum í bænum Røros.

Flugbrautin á flugvellinum í Røros er 1.700 metra löng en vegna sparnaðar ætlar Avinor aðeins að malbika 1.200 metra langan kafla brautarinnar.

Yfirmaður flugvallarins óttast að með þessu þá muni flugvöllurinn ekki geta tekið við stærri flugvélum en þeim Dash 8 flugvélum sem Widerøe notar í áætlunarflugi til Oslóar og sé því ekki lengur möguleiki á að önnur flugfélög geti hafið áætlunarflug til Røros með stærri flugvélum.

„Við gerum okkur grein fyrir því að Avinor vill setja minna fé í flugvöllinn þar sem þeir sjá að flugumferðin er ekki mikil sem fer um völlinn en það er frekar mikil heimska að malbika ekki alla brautina“, segir Hans Vintervold, yfirmaður flugvallarins í Røros.

Flugbrautinn í Røros er 1.700 metra löng en Avinor vill aðeins malbika 70% brautarinnar

Árið 2016 lenti Airbus A319 þota frá Air Berlin á flugvellinum auk þess sem Boeing 737 þotur frá SAS hafa lent þar en slíkt er ekki hægt ef nýting flugbrautarinnar verður skert með styttra yfirlagi.

Útboðstími til verksins rennur út á næstu dögum og ætlar flugvöllurinn og bæjarstjórnin í Røros að gera tilraun til þess að fá Avinor af þeirri ákvörðun að malbika bara hluta flugbrautarinnar á þeim forsendum að það skerði möguleika á því að efla ferðamannaiðnaðinn á svæðinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga