flugfréttir
Einkaþotuútgáfan af Boeing 737 MAX flýgur sitt fyrsta flug
Boeing BBJ MAX flýgur sitt fyrsta flug í gær
Fyrsta einkaþotuútgáfan af Boeing 737 MAX flaug í gær sitt fyrsta tilraunaflug en þotan, sem er af gerðinni BB 737 MAX, fór í lokasamsetningu í byrjun mars.
„Á nokkrum vikum þá hefur verkefnið náð þeim árangri að vélin fór í
samsetningu, var ýtt út úr samsentingarsal, fékk nokkrar vottanir og núna
flýgur hún sitt fyrsta flug“, segir Greg Laxton, yfirmaður yfir Boeing Business
Jet deildinni.
Fyrsta þotan mun koma með aukaeldsneytistanki sem mun gera þotunni
kleift að fljúga 6.640 nm mílur sem samsvarar 12.297 kílómetrum.
Boeing hefur í dag fengið pöntun í tuttugu BBJ MAX þotur og hafa allar undirtegundirnar
verið pantaðar; Boeing BBJ MAX 7, BBJ MAX 8 og BBJ MAX 9 en fyrsta þotan
verður afhent síðar á þessu ári.
Hægt er að innrétta þotuna með hvaða farþegarými sem er að ósk eigandans en sem dæmi geta vélarnar komið með skrifstofu,
svefnherbergi, baðherbergi og fundarherbergi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.