flugfréttir
Orsök flugslyss: Flugmenn slepptu tékklista fyrir flugtak
- Fóru ekki yfir „Before Take-Off“ tékklista sem tilgreindi hita í stemmuröri
Flugmennirnir fengu nánast strax flugtaksheimild og drifu sig í loftið en gleymdu að fara yfir before take-off tékklistann
Flugmálayfirvöld í Rússlandi telja að flugmenn Antonov An-148 farþegaþotunnar frá Saratov Airlines, sem fórst skömmu eftir flugtak frá Domodedovo-flugvellinum í Moskvu þann 11. febrúar á þessu ári, hafi sleppt þeim hluta tékklistans þar sem tilgreind er sú aðgerð að setja hita á stemmurör.
Flugvélin var á leið til borgarinnar Orsk í Rússlandi en um borð voru 65 farþegar auk sex manna áhafnar
og komst enginn lífs af úr slysinu er vélin hrapaði til jarðar úr 6.000 feta hæð, skammt austur af
Moskvu.
Rosaviatsia, rússnesku flugmálayfirvöldin, segja að flugmenn vélarinnar hafi haft samband við grundtíðnina
klukkan 14:00 til að fá leyfi til að ræsa hreyfla.
Flugmennirnir fóru yfir „before engine start“ tékklista klukkan 14:02 og fóru því næst yfir „before taxi“ listann áður
en þeir byrjuðu að aka frá hliði klukkan 14:07.
Sá listi inniheldur atriði á borð við að virkja hita fyrir stemmurör sem á ensku nefnist „pitot static heating
system“ en það kerfi setur hita á lítið rör sem mælir loftþrýsting til að knýja mæla í stjórnklefanum
sem sýna upplýsingar um flughraða, flughæð og lóðréttan flughraða.
Ef stemmurör stíflast við ísingaraðstæður sýna mælarnir rangar upplýsingar en til að koma í veg fyrir
það á flugvélum sem fljúga við slíkar aðstæður er hitakerfi sem setur hita á rörið til að koma í veg fyrir
ísingu.
Rosaviatsia segir að samkvæmt aðgerðarhandbók flugfélagsins þá sé atriðið er varðar hitakerfi fyrir stemmurör tilgreint í „before take-off“ tékklista en
sérfræðingar hafa farið yfir gögn úr flugrita og hefur komið í ljós að á engum tímapunkti var hiti settur á þau þrjú stemmurör sem flugvélin hefur.
Fengu strax flugtaksheimild er þeir byrjuðu að aka frá hliði
Flugmennirnir fengu nánast samstundis flugtaksheimild er þeir hófu akstur frá hliði
og kemur fram að þeir hafi ekki farið yfir „before take-off“ listann og drifið sig strax í loftið og þar
með gleymt að athuga hvort að stemmurörið hafi verið upphitað.
Flugvélin hóf sig á loft klukkan 14:21 og var sjálfstýringin virkjuð í 490 feta hæð og voru flapar
teknir upp í 1.800 feta hæð.
Tveimur mínútum síðar fóru hraðamælar að sýna óáreiðanlegan flughraða og misstu flugmennirnir
stjórn á vélinni skömmu síðar.
Vélin fórst 6 mínútum eftir flugtak og brotlenti á akri í 40 kílómetra fjarlægð norðaustur af Domodedovo-flugvellinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.