flugfréttir

Nokkrar þotur frá ANZ þurftu að lenda til að taka meira eldsneyti

- Takmarkanir á ETOPS á Boeing 787-9 gerir Air New Zealand erfitt fyrir

23. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:34

Dreamliner-þota Air New Zealand

Vandamál með Trent 1000 hreyflana frá Rolls-Royce á Boeing 787-9 Dreamliner-þotunum hefur valdið því að áætlunarflug hjá Air New Zealand hefur nokkrum sinnum sl. daga þurft að lenda á miðri leið til að taka meira eldsneyti.

Vegna galla í hreyflablöðum á vissum útgáfum af Trent 1000 hreyflinum þá gáfu flugmálayfirvöld út tilmæli í síðustu viku og voru takmarkanir settar á notkun hreyfilsins.

Fjarflugsleyfi (ETOPS) þeirra Boeing 787 þotna, sem hafa Trent 1000 hreyfla, var m.a. skert úr 330 mínútum niður í 140 mínútur sem þýðir að viðkomandi þotur þurfa að halda sig nær næsta varaflugvelli á langflugi og nær landi á flugi yfir úthöf sem skerðir langflugshæfni vélarinnar töluvert. 

Boeing 787-9 þotur Air New Zealand hafa vegna þessa þurft að fljúga lengri flugleið yfir úthöf til að halda sig nær næsta varaflugvelli sem kallar á meiri eldsneytiseyðslu í stað þess að fljúga beinni flugleið.

Þetta hefur haft áhrif á leiðarkerfi flugfélagsins nýsjálenska á flugi frá Nýja-Sjálandi til áfangastaða í Asíu auk Los Angeles og Houston.

Air New Zealand hefur fyllt vélarnar af eldsneyti fyrir nokkrar flugferðir til að gera ráð fyrir lengri flugleið en sl. helgi þurftu nokkrar Boeing 787-9 þotur að lenda og taka eldsneyti í Sydney, Cairns, Darwin og í Guam.

Níu Trent 1000 hreyflar á Boeing 787-9 þotum Air New Zealand heyra undir tilmæli frá flugmálayfirvöldum og hefur það áhrif á flug félagsins til Bali, Singapore, Shanghai, Tokyo, Los Angeles og Houston.

Air New Zealand segir að vandamálið eigi eftir að hafa áhrif á 9.000 farþega á næstu vikum sem er undir 3% af öllum þeim farþegum sem eiga bókað með félaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga