flugfréttir

11 ára flugprófunum með F-35 herþotuna lokið

- Kostnaðurinn fór yfir 40 þúsund milljarða króna

23. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:36

F-35 Lighning II frá Lockheed Martin er ein tæknivæddasta orrustuþota heims

Lockheed Martin hefur tilkynnt að öllum flugprófunum með F-35 orrustuþotuna er formlega lokið af hálfu framleiðandans en um er að ræða umfangsmestu flugprófanir í sögu flugsins.

Seinasta tilraunaflugið var liður í System Development and Demonstration (SDD) prófunum sem lauk þann 11. apríl sl. í Maryland í Bandaríkjunum en eingöngu þær prófanir kostuðu 6 þúsund milljarða króna sem er 50% meiri kostnaður en gert var ráð fyrir í upphafi.

Flugprófanir með F-25 orrustuþotuna hófust árið 2006 og hefur tilraunarþotum verið flogið 9.200 sinnum í 17.000 klukkustundir en alls hafa 65.000 mismunandi tegundir af prófunum farið fram á hönnun, flugþoli, hugbúnaði, skynjurum, vopnabúnaði og flugeiginleikum fyrir allar þrjár útgáfurnar af F-35 þotunni.

„F-35 flugprófanirnar eru þær viðamestu, ströngustu og öruggustu sem gerðar hafa verið í flugsögunni“, segir Greg Ulmer, varaforstjóri Lockheed Martin og yfirmaður yfir F-35 verkefninu.

F-35 orrustuþotan er langdýrasta flugvélategund sem smíðuð hefur verið í sögunni

Framkvæmdar voru m.a. 1.500 lóðréttar lendingar, 183 tilraunir með vopnabúnað, 46 nákvæmnistilraunir á flugskeytum og 33 tilraunir á skilvirkni í hernaðaraðgerðum.

Prófunum á F-35 verður þó ekki formlega lokið fyrr en bandríska varnarmálaráðuneytið hefur framkvæmt rekstar- og úttektsprófanir með orruustuþotuna en að því loknu getur fjöldaframleiðsla hafist á fullu.

Þrátt fyrir það er búið að afhenda 300 eintök af orrustuþotunni til tíu herstöðva í sex löndum.

Heildarkostnaðurinn við F-35 orrustuþotuna er komin yfir 40 þúsund milljarða króna en þess má geta að kostnaðurinn við Airbus A380 risaþotuna nemur „aðeins“ 3 þúsund milljörðum króna sem er tæp 8% af kostnaðinum við F-35 verkefnið.

Fyrir slíka upphæð mætti byggja 2.397 tónlistarhús á við Hörpuna til viðbótar og þá þyrti 203 stóra flutningabíla til að flytja þá upphæð í seðlum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga