flugfréttir
Flugfélag í Nígeríu flaug áætlunarflug án leyfis
- Svipt flugrekstarleyfinu varanlega
Airbus A319 þota First Nation Airways
Flugmálayfirvöld í Nígeríu hafa svipt flugfélaginu First Nation Airways flugrekstarleyfinu þar sem félagið hefur brotið það fyrirkomulag er varðar flugrekstur sem félaginu var sett.
Í ágúst í fyrra var félaginu meinað að fljúga áætlunarflug þar sem félagið var staðið af því að hafa brotið lög
sem fara fram á að flugfélag verði að hafa a.m.k. tvær lofthæfar flugvélar í flota sínum til að hafa leyfi
til að halda úti áætlunarflugi.
Þrátt fyrir þau fyrirmæli þá komust flugmálayfirvöld að því að félagið hafði verið að selja farmiða við innritun á flugvöllunum
í Lagos og í Abuja með aðeins eina lofthæfa Airbus A319 þotu.
Nígerísk flugmálayfirvöld hafa þar af leiðandi ákveðið að First Nation Airways sé ekki fært um að uppfylla þau skilyrði sem
til þarf til þess að halda úti farþegaflugi og er félagið svipt flugrekstarleyfinu varanlega.
Fram kemur að First Nation Airways geti mögulega sótt um leyfið á ný ef félagið geti sýnt fram á að það
sé reiðubúið að framfylgja reglugerðum um flugrekstur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem First Nation Airways fer ekki eftir reglugerðum en í fyrra var félagið sektað um 11,8 milljónir króna eftir að í ljós kom að einn flugstjóri hjá félaginu hafði flogið í nokkra mánuði með útrunnið heilbrigðisvottorð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.