flugfréttir
Flybe ætlar að fækka í flotanum
- Bombardier Q400 er besti flugkosturinn sem félagið gæti haft
Bombardier Dash 8 Q400 flugvél Flybe
Breska flugfélagið Flybe hefur eftir gaumgæfilega athugun komist að því að Bombardier Q400 flugvélarnar séu bestu vinnuhestarnir í flota félagsins en félagið stefnir samt sem áður á að fækka flugvélunum í flotanum.
Með því verður skorið niður í flotanum og fækkað um sjö flugvélar og ætlar Flybe með því að hafa 70 flugvélar í flotanum
árið 2020 en floti félagsins taldi 85 flugvélar þegar mest var í maí í fyrra.
Flybe hefur í dag sjötíu og sjö flugvélar. 54 af gerðinni Bombardier Dash 8 Q400, átján Embraer E175 og E195 þotur
auk fimm ATR flugvéla.
Flybe segir að Bombardier Q400 sé hraðfleygari en aðrar skrúfuflugvélar og nái sambærilegum afköstum á borð við minni þotur á styttri flugleiðum.
Til stendur að losa sig við sjö elstu Bombardier Q400 vélarnar og einblína aðeins á þær flugleiðir sem skili félaginu hagnað.
Flybe á eftir að fá fjórar Embraer E175 þotur afhentar en félagið stefnir að öðru leyti ekki á að panta fleiri þotur á næstu árum.
„Stefnan er að fækka aðeins í flotanum og er nákvæm flotastýring liður í þeirri stefnu. Við höfum farið mjög vandlega ofan
í reksturinn okkar og komist að því að Bombardier Q400 er besti kosturinn fyrir okkur. Mjög hagkvæmar, hraðfleygar og
hljóðlátar flugvélar koma sér vel fyrir okkur“, segir Christine Ourmiéres-Widener, framkvæmdarstjóri Flybe.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.