flugfréttir

Búnaður við landgang á erfiðara með að skynja dökkar flugvélar

- Meiri hætta á að flugvél í dökkum litum rekist á landgang

16. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:47

A-VDGS búnaður við stæði sem leiðbeinir flugvélum að landgangingum

Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) hefur gefið frá sér yfirlýsingu með tilmælum til þeirra flugfélaga, sem hafa flugvélar í flota sínum sem eru málaðar í mjög dökkum litum, þar sem varað er við því að mögulega gæti komið upp vandamál með að leiðbeiningarbúnað á flugvallarstæðum sem geta átt erfitt með að greina dökka flugvél sem kemur að hliði.

Flestir stærri flugvellir hafa búnað við brottfararhlið sem nefnist „visual-docking system“ sem hjálpar flugmönnum við að vera alveg á miðri aksturslínunni og gefur til kynna hvar þeir eiga að stöðva vélina til að vera á réttum stað við landgöngubrú.

Flugvellir nota mismunandi búnað til að leiðbeina flugvélum að stæði en algengustu kerfið eru A-VDGS („Advanced Visual Docking Guidance Systems“) og AGNIS sem stendur fyrir „Azimuth Guidance for Nose-In Stand“.

Svörtu Boeing 777 þoturnar hjá Air New Zealand gætu verið í sérstakri áhættu hvað vandamálið varðar

EASA segir í yfirlýsingu sinni, sem send hefur verið til flugfélaga og til flugvalla, að hætta sé á því að í einhverjum tilvikum geti þessi kerfi ekki náð að greina flugvél í dökkum litum með tilheyrandi árekstrarhættu.

Fyrirmælin eru gefin út í kjölfar atviks sem átti sér stað á dögunum er leiðbeiningarkerfi náði ekki að greina eina farþegaþotu sem var að koma að hliði eftir að hún var nýlent á ótilgreindum flugvelli en flugvélin rakst með vænginn utan í landganginn.

EASA tilgreinir ekki hvaða flugfélag átti í hlut en fram kemur að sama flugvélin hafði lent í sambærilegum vandræðum sem er rakið til þess að flugvélin er máluð í mjög dökkum litum.

Farþegaþota frá Vietnam Airlines rakst á landgang árið 2016

Fram kemur að margir flugvallarrekendur vita af þessu vandamáli en samt ekki allir flugvellir og séu starfsfólk á flugvöllum því ómeðvitað um þessa hættu þegar flugvél í dökkum litum er að leggja við landgang.

EASA mælir með því að flugvellir athugi þann búnað sem þeir nota við landganga og athugi hvort til staðar sé vandamáli við að greina einhverja aðra liti á flugvélum og grípa til aðgerða ef svo er.

Boeing 737 þota frá Southwest Airlines sem rakst utan í landgang í Miami nýlega









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga