flugfréttir
Hafa aðeins 48 tíma til að innrita sig á Netinu
- Farþegar rukkaðir um 6.700 krónur ef þeir þurfa að innrita sig á flugvellinum
Boeing 737 þotur Ryanair
Ryanair hefur ákveðið að taka upp sérstakt aukagjald fyrir þá sem innrita sig ekki í flug á Netinu og þá hafa farþegar einnig styttri tíma til að innrita sig.
Nýr tímarammi fyrir farþega til að innrita sig gegnum Netið verður frá 48 klukkustundum fyrir brottför
og lokar fyrir innritun tveimur tímum fyrir flugið.
Þeir sem ná ekki að innrita sig fyrir flugið á þessu tímabili, og þurfa að gera það á flugvellinum, þurfa að greiða
55 evrur í aukagjald sem nemur 6.700 krónum.
Þetta á þó eingöngu við þá farþega sem hafa ekki valið sér sérstök sæti en þeir farþegar, sem bókuðu sérstaklega
sæti og greiddu fyrir sætaval, þurfa ekki að hafa áhyggjur af aukagjaldinu.
Farþegar, sem fljúga með Ryanair, hafa hingað til getað innritað sig í flugið á Netinu allt að viku fyrir brottför
en talið er að með þessari breytingu gæti það þýtt meiri erfiðleika fyrir farþega þegar kemur að heimferðinni.
Margir farþegar, og þá sérstaklega þeir sem ekki hafa gagnamagn í símanum í fríinu, þurfa því að komast í
netsamband á síðustu stundu áður en kemur að heimferðinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.