flugfréttir

Icelandair flýgur fyrsta flugið til Cleveland

- Fyrsta nýja borgin af fimm í Norður-Ameríku sem bætast við í sumar

17. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:16

TF-ICY (Látrabjarg) lendir á flugvellinum í Cleveland í gær eftir fyrsta flugið

Icelandair flaug í gær sitt fyrsta áætlunarflug til Cleveland í Ohio sem er nýjasti áfangastaðurinn í leiðarkerfi félagsins.

Cleveland er einnig borg sem aldrei áður hefur verið flogið til frá Íslandi og er því um algjöra nýjung að ræða fyrir Íslendinga sem og íbúa Ohio sem geta nú flogið beint til Íslands og þaðan áfram til Evrópu.

Flogið var með annarri Boeing 737 MAX þotunni sem Icelandair hefur tekið í notkun sem ber skráninguna TF-ICY og hefur fengið nafnið Látrabjarg.

Cleveland, sem liggur við Erie-vatnið, sem er eitt af stóru vötnunum í norðaustur hluta Bandaríkjanna, er önnur fjölmennasta borg Ohio á eftir Columbus og 32. stærsta borg Bandaríkjanna.

Inga Lára Gylfadóttir, flugstjóri, sker fyrstu tertusneiðina í tilefni að fyrsta fluginu til Cleveland

Cleveland er heimaborg Superman en höfundar ofurhetjunnar frægu, Jerry Siegel og Joe Shuster, skrifuðu söguna um Superman í Cleveland árið 1933.

Cleveland er einnig kunn fyrir kraftmikið lista- og íþróttalíf, en þar er meðal annars hið þekkta safn Rock and Roll Hall of Fame Museum. Körfuboltalið borgarinnar, Cavaliers, þekkja flestir áhugamenn um körfuknattleik, en með því leikur ein skærasta stjarna NBA, Lebron James.

Cleveland er ein af þeim fimm borgum í Bandaríkjunum sem bætast við leiðarkerfi Icelandair í sumar en félagið mun á næstunni einnig hefja flug til Kansas City, Dallas, San Francisco og þá mun flug til Baltimore hefjast að nýju.

Hér að ofan má sjá mynd sem tekin var á Cleveland flugvelli í gærkvöldi þegar fyrsta fluginu var fagnað, m.a. með tónlistarflutningi Lay Low og hátíðartertu fyrir farþega og aðra gesti en það er Inga Lára Gylfadóttir, flugstjóri, sem mundar tertuspaðann.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga