flugfréttir

Fyrsta flug WOW air til St. Louis

18. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:09

Flugfreyjur WOW air á Lambert-flugvellinum í St. Louis í gær

WOW air flaug í gær fyrsta áætlunarflugið til St. Louis í Missouri sem er nýr áfangastaður sem bætist við í flóruna í Keflavík.

Aldrei áður hefur verið flogið beint til St. Louis frá Íslandi en þetta er sjötti nýi áfangastaðurinn sem WOW air hefur flug til á þessu ári.

Þann 28. apríl byrjaði WOW air að fljúga til JFK flugvallarins í New York, 25. apríl var flogið til Detroit og til London Stansted í fyrsta sinn, þann 3. maí flaug félagið fyrsta flugið til Cleveland og þann 9. maí hófst flug til Cincinnati.

Fyrsta flug WOW air til St. Louis í gær var flogið með nýju Airbus A321 þotunni TF-DOG sem var afhent WOW air þann 24. apríl sl.

Gateway Arch boginn í St. Louis

„Það hefur ríkt mikil spenna og tilhlökkun frá því WOW air tilkynnti sl. haust að félagið ætlaði að fljúga yfir hafið til og frá St. Louis“, segir Lyda Krewson, borgarstjóri St. Louis.

Flogið verður fyrst um sinn fjórum sinnum í viku til St. Louis en frá 3. júní til 23. september verður flogið fimm sinnum í viku.

St. Louis er 19. stærsta borg Bandaríkjanna með 2.8 milljónir íbúa. Borgin er stundum nefnt „hliðið“ inn í vestrið en hún stendur við Mississippi-ánna á fylkjamörkum Missouri og Illinois.

Frægasta einkenni borgarinnar er „Gateway Arch“ sem er 192 metra hár stálbogi sem var hannaður af finnska hönnuðinum Eero Saarinen árið 1947.

St. Louis er þrettándi áfangastaður WOW air í Norður-Ameríku en þann 24. maí mun félagið hefja flug til Dallas í Texas.

Að sjálfsögðu var bökuð sérstök terta í tilefni að fyrsta fluginu eins og hefð er



Farþegar innrita sig í flugið til Íslands á Lambert-flugvellinum







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga