flugfréttir
Cessna Grand Caravan fórst í Nepal
- Tveir flugmenn létust í flugslysi í Himalaya-fjöllunum
Cessna 208 Grand Caravan flugvélin sem fórst
Tveir eru látnir eftir flugslys í Nepal er fraktflugvél af gerðinni Cessna 208 Grand Caravan brotlenti í fjallshlíð í Himalaya-fjöllunum sl. miðvikudag.
Flugvélin, sem var frá nepalska flugfélaginu Makalu Air Cargo, fór í loftið frá flugvellinum í Surkhet
áleiðis til höfuðstöðvanna í bænum Simikot en þangað er um 50 mínútna langt flug.
Tvær björgunarþyrlur voru sendar af stað til að leita af flugvélinni
og fannst flakið í fjallshlíð í 12.800 feta hæð. Tveir flugmenn voru um borð en hvorugur
lifði slysið af.
Fram kemur að flugmennirnir hefðu neyðst til þess að lenda vélinni á leiðinni vegna bilunar sem kom
upp en ekki er vitað meira um orsök slyssins.
Myndir af vettvangi:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.