flugfréttir
Móðurfélag BA með nýtt tilboð í Norwegian
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri Internatinal Airlines Group (IAG) og Bjorn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian
IAG (International Airlines Group), móðurfélag British Airways, ætlar ekki að gefast upp hvað varðar tilraunir á yfirtöku á Norwegian og ætlar fyrirtæki að koma með nýtt tilboð í flugfélagið norska.
IAG keypti í apríl 4.6 prósenta hlut í Norwegian og kom félagið í kjölfarið með tilboð í 100% hlut en
stjórn Norwegian hafnaði tilboðinu þar sem það þótti of lágt.
Stjórn IAG segist vera að undirbúa nýtt tilboð þar sem til stendur að meta félagið á 1.52 milljarða evra sem samsvarar
187 milljörðum króna.
„Þetta eru ekki kaup sem við þurfum endilega að fara út í. Ef þeir vilja ekki láta kaupa sig þá er það í lagi mín vegna“, sagði
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri IAG, á dögunum.
Walsh sér fram á að Norwegian yrði eitt af dótturfélögum IAG og jafnvæl myndi einhver hluti félagsins sameinast
nýja lágfargjaldafélaginu LEVEL sem stofnað var í fyrra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.