flugfréttir
IAG leigir út pláss á Gatwick yfir sumarið
Plássin verða leigð út til Qatar Airways og Thomas Cook
IAG, móðurfélag British Airways, hefur leigt út nokkur afgreiðslupláss á Gatwick-flugvellinum í London til tveggja flugfélaga sem munu nota plássin í sumar.
Plássin keypti IAG úr þrotabúi Monarch Airlines sem hætti starfsemi sinni í fyrra en plássin verða leigð til
flugfélaganna Qatar Airways og Thomas Cook.
Fram kemur að IAG hafi ákveðið að velja þessi tvö flugfélög þar sem það kemur einnig IAG til góða þar sem nýtingin
af plássunum muni styrkja stöðu móðurfélagsins á Gatwick.
Qatar Airways flýgur tvisvar á dag á London Gatwick frá Doha með Boeing 787-8 þotum en Thomas Cook
flýgur frá Gatwick til níu áfangastaða allan ársins hring auk þess sem árstímabundnir áfangastaðir félagsins eru
39 talsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.