flugfréttir

Tvær þotur fóru of langt eftir lendingu á flugbraut í Hamborg

- Var báðum gert að fara út af á tiltekinni akbraut vegna framkvæmda

22. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:36

Boeing 737-800 þota Ryanair í lendingu í Hamborg

Flugmálayfirvöld í Þýskalandi rannsaka nú tvenn mistök sem áttu sér stað á flugvellinum í Hamborg fyrr í þessum mánuði þar sem tvær farþegaþotur fór inn á ranga akbraut eftir að þær yfirgáfu flugbraut eftir lendingu.

Fyrra atvikið átti sér stað þann 11. maí er Airbus A320 þota frá SAS lenti á flugvellinum eftir flug frá Hamborg.

Þotan lenti á braut 05 og átti flugvélin að fara út af um A6 þar sem framkvæmdir á hinum enda brautarinnar voru í gangi við næsta útafakstur en vélin náði ekki að hemla í tæka tíð og fór út af E6.

Í upplýsingum til flugmanna (NOTAM) kemur fram að framkvæmdir eru í gangi við 23 brautarendann sem staðið hafa yfir frá því 12. apríl og eru verklok áætluð þann 23. maí.

Framkvæmdir voru þó ekki hafnar nákvæmlega á þeim stað þar sem þotan yfirgaf brautina þar sem ákveðið var að hafa svæðið á milli A6 og E6 sem öryggissvæði á meðan.

Ekki voru neinar vinnuvélar eða verkamenn á svæðinu en þrátt fyrir það er atvikið nú til rannsóknar.

Svo virðist vera að NOTAM upplýsingarnar hafi ekki komist til skila til allra flugmanna þar sem að önnur þota af gerðinni Boeing 737-800 frá Ryanair lenti á sömu braut þann 15. maí sl. eftir flug frá Barcelona en flugmenn þeirra flugvélar náðu einnig ekki að stöðva í tæka tíð til að fara út af á akbraut A6.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga