flugfréttir

Þróun á hreyfli gæti seinkað Boeing 797 til ársins 2026

22. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:52

Tölvugerð mynd af Boeing 797

Svo gæti farið að áætlanir Boeing um hönnun á nýrri farþegaþotu, sem að öllum líkindum verður nefnd Boeing 797, muni dragast enn frekar á langinn þar sem enn á eftir að þróa hreyfil fyrir flugvélina.

Aðilar, sem kunnugir eru málinu innan veggja Boeing, segja að flugvélaframleiðandinn sé að vinna að því að ýta verkefninu úr vör eins fljótt og hægt er og kynna Boeing 797 formlega til leiks svo þeir muni ekki hellast úr lestinni gagnvart A321LR þotunni frá Airbus.

Steven Udvar-Hazy, framkvæmdarstjóri flugvélaleigunnar Air Lease Corporation, segir að samkvæmt hreyflaframleiðendunum Rolls-Royce, Pratt & Whitney og GE Aviation, þá muni það taka allt að eitt og hálft ár að finna lausn er varðar þróun á hreyfli fyrir Boeing 797 sem síðan á eftir að smíða og framkvæma prófanir á en það gæti átt eftir að seinka því hvenær þotan kemur á markaðinn.

„Við höfum verið að þrýsta á Boeing að velja hreyflaframleiðanda sem fyrst. Munum við sjá nýja hreyfilinn vera orðin áreiðanlegan fyrir árið 2025 eða 2026? - Ég held ekki“, segir Udvar-Hazy.

Steven Udvar-Hazy, framkvæmdarstjóri flugvélaleigunnar
Air Lease Corporation,

Boeing hefur miðað við að nýja farþegaþotan, sem er ætlað að brúa bilið á milli Boeing 737 MAX 9 og Boeing 787-8, komi á markaðinn árið 2024 en ef þróun á hreyfli fyrir þotuna á eftir að verða vandamál þá mun það dragast á langinn að afhendingar geti hafist sem á eftir að gefa Airbus enn meira forskot.

Á markaðinn 8 árum eftir Airbus A321LR þotu Airbus

Airbus hefur nú þegar hafið prófanir með Airbus A321LR sem er langdræg útgáfa af Airbus A321neo þotunni en hún flaug jómfrúarflugið sitt í janúar sl. og verður hún langdrægasta farþegaþota heims í flokki mjóþotna sem koma með einum gangi.

Ef spár Udvar-Hazy ganga upp með að Boeing 797 komi á markaðinn árið 2026 þá mun sú þota gefa Airbus forskot upp á 8 ár.

Airbus hefur markaðssett Airbus A321LR þotuna sem lausn fyrir þau flugfélög sem vilja skipta út eldri þotum á markaðnum í sambærilegum flokki á borð við Boeing 757-200. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga