flugfréttir
Svipt leyfinu vegna flugslyssins á Kúbu
Boeing 737-200 þotan sem fórst bar skráninguna XA-UHZ
Flugmálayfirvöld í Mexíkó hafa svipt flugfélaginu Damojh Airlines flugrekstrarleyfinu í kjölfar flugslyssins þann 18. maí sl. er þota í eigu félagsins af gerðinni Boeing 737-200 fórst skömmu eftir flugtak frá Havana á Kúbu.
Þotan var að fljúga á vegum ríkisflugfélagsins Cubana sem leigði vélina af mexíkóska flugfélaginu en þotan var á leið til borgarinnar Holguín.
113 manns voru um borð í vélinni og voru 11 sem létu lífið. Þremur var bjargað á lífi en sá þriðji lést á leiðinni á sjúkrahús og eru hinir tveir í lífshættu.
Í yfirlýsingu kemur fram að félagið hafi verið svipt flugrekstrarleyfinu vegna öryggismála í
rekstri félagsins en þetta er í þriðja sinn sem Damojh Airlines missir flugrekstarleyfið.
Fyrst var félagið svipt leyfinu árið 2010 í kjölfar atviks sem átti sér stað í Puerto Vallarta í Mexíkó er
þota frá félaginu nauðlenti vegna bilunar í hjólabúnaði og aftur árið 2013 vegna kvörtunar frá flugstjóra
einum vegna gruns um ófullnægjandi viðhald á flugvélum félagsins.
Búið er að finna hljóðrita vélarinnar en leit að flugritanum stendur enn yfir. Það eru yfirvöld á Kúbu
sem stjórna rannsókninni á flugslysinu á meðan stjórnvöld í Mexíkó og í Bandaríkjunum aðstoða
við rannsóknina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.