flugfréttir

Flugmaðurinn fastur í umferð í leigubíl í fjóra tíma

- Samtals sjö tíma seinkun á flugi frá Gatwick til Belfast

23. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 18:29

Flugmaðurinn var á leiðinni til Gatwick-flugvallarins frá Luton þegar upp kom gríðarleg umferðarteppa vegna áreksturs nálægt Heathrow-flugvelli

Farþegar með einu flugi á vegum easyJet þurftu að bíða í fjórar klukkustundir inni í vélinni á Gatwick-flugvellinum í gær þar sem annar flugmaðurinn var fastur í umferð í leigubíl.

Flugvélin átti að fara í loftið áleiðis til Belfast klukkan 17:55 í gær að staðartíma en vélin fór hinsvegar ekki í loftið fyrr en klukkan 00:55 eftir miðnætti.

Fluginu hafði þegar seinkað um þrjár klukkustundir áður en kallað var út í vél vegna verkfallsaðgerða meðal flugumferðarstjóra í Frakklandi sem hafði seinkað fluginu á undan.

Flugstjórinn tilkynni farþegum að þar sem áhöfnin var að nálgast löglegan vinnutíma þyrfti að kalla til aðra áhöfn.

Nýr flugstjóri sem var mættur í stjórnklefann tilkynnti farþegum því næst að allir tiltækir aðstoðarflugmenn á bakvakt á Gatwick-flugvelli væru úti og var verið að bíða eftir flugmanni sem var laus á Luton-flugvelli sem verið var að senda yfir með leigubíl en akstur frá Luton til Gatwick tekur 1 klukkustund og 25 mínútur.

Alls varð sjö tíma seinkun á fluginu

Þegar flugmaðurinn var á leiðinni með leigubíl vildi ekki betur til en að árekstur varð á hraðbraut nálægt Heathrow-flugvelli sem olli gríðarlegu umferðaröngþveiti og var flugmaðurinn fastur í leigubíl í langri bílaröð.

„Í þrjár klukkustundir sagði flugstjórinn á 45 mínútna fresti við farþegana að það væru 45 mínútur í hinn flugmanninn“, segir einn farþegi sem var um borð í fluginu.

Flugstjórinn sagði farþegum að hann væri að fylgjast með staðsetningu flugmannsins á Google Maps og var hann komin um miðnætti út á Gatwick-flugvöll.

„EasyJet gerði allt sem í þeirra valdi stóð til þess að lágmarka röskun fyrir farþegana sem fengu einnig mat og drykk“, segir talsmaður easyJet.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga