flugfréttir
United flýgur fyrsta flugið til Íslands
Boeing 757-200 þota United Airlines á Keflavíkurflugvelli
Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur flogið sitt fyrsta flug til Íslands sem lenti á Keflavíkurflugvelli sl. miðvikudag.
United flýgur hingað til lands frá Newark-flugvellinum í New Jersey og er þetta í fyrsta sinn sem þetta þriðja stærsta
flugfélag heims flýgur til landsins.
Það var í september í fyrra sem United Airlines tilkynnti að félagið myndi hefja flug til Íslands en félagið flýgur
þetta flug í samkeppni við Icelandair og WOW air sem bæði fljúga til Newark.
United Airlines mun fljúga daglega með Boeing 757 þotum til Keflavíkur og verður flogið fram til 4. október og er það GMT sem sér um að þjónusta vélarnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.