flugfréttir
Fyrsta A380 risaþota ANA kemur úr samsetningu
Airbus A380 risaþota ANA (All Nippon Airways)
Fyrsta Airbus A380 risaþotan fyrir ANA (All Nippon Airways) er komin út úr samsetningarsal Airbus í Toulouse en samsetning á þotunni hófst í apríl.
Í tilkynningu frá Airbus segir að risaþotunni verði komið fyrir á stæði á athafnasvæðinu þar sem lokið verður við að koma
fyrir búnaði um borð auk þess sem hreyflar verða festir á vængina.
A380 risaþotur ANA munu koma með sætum fyrir 520 farþega en fyrsta eintakið verður afhent til flugfélagsins japanska
árið 2019.
ANA pantaði þrjár Airbus A380 árið 2016 og verða þær afhentar í mars, júní og í september á næsta ári.
ANA tók við pöntun sem Skymark Airlines lagði inn til Airbus sem hefði orðið fyrsta japanska flugfélagið til að fljúga risaþotunni þar í landi en hætt var við pöntunina árið 2014, skömmu áður en félagið varð gjaldþrota.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.