flugfréttir
Rakst með vængendann í steinvegg
Talið er að starfsmaður á flugvallarökutæki, sem dró flugvélina að hliði, hafi misreiknað beygjuna
Breiðþota af gerðinni Airbus A330 frá Aer Lingus rakst með vængenda utan í steinvegg á flugvellinum í San Francisco sl. miðvikudag.
Flugvélin var nýlent í San Francisco eftir flug frá Dublin þegar atvikið átti sér stað er vélin var að koma að landgang.
Fram kemur að dráttarbíll hafi verið að draga vélina að hliðinu en talið er að flugvallarstarfsmaðurinn hafi misreiknaði
staðsetninguna í beygjunni með þeim afleiðingum að hægri vængurinn fór utan í vegginn.
Engann sakaði um borð en vélin varð fyrir einhverjum skemmdum og hefur hún verið kyrrsett á flugvellinum vegna
tjónsins.
Farþegi einn í flugvélinni segir að þetta hafi verið töluvert högg sem hafi náð að láta farþega hrisstast til
í sætum sínum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.