flugfréttir
Fyrsta flugi Icelandair til Kansas City fagnað
Fyrsta flug Icelandair til Kansas City hóf sig á loft í dag um klukkan 18:00
Fyrsta flugi Icelandair til Kansas City frá var fagnað við brottför á Keflavíkurflugvelli nú síðdegis en Kansas City er ein fimm nýrra borga í Norður-Ameríku sem Icelandair bætir við leiðakerfi sitt nú í vor.
Hinar borgirnar eru Baltimore, Cleveland, Dallas og San Francisco en flýgur Icelandair því nú til 23 borga í Norður-Ameríku í ár.
Flugvöllurinn i Kansas City er sá stærsti í Bandaríkjunum þar sem ekkert beint flug til Evrópu er í boði. Með nágrannaborgum er íbúafjöldi svæðisins um 5 milljónir og Icelandair því að opna stóran spennandi markað fyrir íslenska ferðaþjónustu og styrkja tengiflug félagsins til og frá Evrópu.
Borgin er staðsett í miðjum Bandaríkjunum á mörkum fylkjanna Kansas og Missouri á sléttunum miklu. Saga hennar tengist gjarnan villta vestrinu og amerískri menningu. Hún var heimabær útlagans Jessie James, þar teiknaði Walt Disney fyrst Mikka mús á námsárum sínum og Count Basie kynnti „swing“ tónlist fyrst á fjölmörgum jassklúbbum borgarinnar.
Í dag er borgin um margt dæmigerð amerísk stórborg sem býður upp á fjölbreytt menningar- og viðskiptalíf, vetingastaði og aðra afþreyingu.
Myndin var tekin á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir flugtak þegar Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair og áhöfnin á fyrsta fluginu stilltu sér upp framan við Heklu Auroru, Boeing 757 vél Icelandair.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.