flugfréttir

Boeing 777X og 787-10 ekki í myndinni fyrir American

26. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:36

Dreamliner-þota American Airlines

Hvorki Boeing 777X né Boeing 787-10 eru í myndinni fyrir American Airlines en Vasu Raja, varaformaður yfir leiðakerfis- og áætluanardeild félagsins, segir að ekki sé verið að skoða nýjustu breiðþoturnar á markaðnum er kemur að flotastefnu fyrir næstu ár.

Samt sem áður er töluverð útrás í myndinni er kemur að stækkun flugflotans en að fjárfesta í nýjum breiðþotum sé aðeins einn möguleikinn. „Að nota stærri þotur og fljúga þeim lengra eða nota vélarnar meira yfir daginn og auka nýtni þeirra er líka ein leið“, segir Raja.

American Airlines hefur bæði Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-8 og Boeing 787-9 og voru pöntuð 47 eintök af þeim á sínum tíma til að leysa af hólmi Airbus A330-200 þoturnar, Boeing 767-300ER og einhverjar af þeim Boeing 777-200 þotum sem félagið hefur.

Margir hafa spurt sig hvort félagið ætli að panta Boeing 777X til að skipta út fyrir þær 47 Boeing 777-200 þotur sem eru í flota félagsins en líkur eru á að félagið muni frekar ákveða að skipta Boeing 767 og Airbus A330 út fyrir eina breiðþotutegund sem er Boeing 787.

Ekkert bandarískt flugfélag hefur pantað Boeing 777X sem verður arftaki Boeing 777 þotunnar sem kom fyrst á markaðinn árið 1995.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga