flugfréttir
Airbus A350-1000ULR gæti farið á teikniborðið
- Lengri útgáfa af langdrægustu farþegaþotu heims
Eric Schulz, sölustjóri Airbus, segir að Airbus A350-1000ULR fari sennilega á teikniborðið
Sagt er að Airbus sé að íhuga að koma með ofur langdræga útgáfu af Airbus A350-1000 þotunni sem fengi þá nafnið Airbus A350-1000ULR.
Nú þegar fara prófanir fram með Airbus A350-900ULR þotuna sem flaug sitt fyrsta flug þann 23. apríl sl. en sú
þota verður langdrægasta farþegaþota heims er hún kemur á markaðinn.
Eric Schulz, sölustjóri Airbus, staðfesti í viðtali í Sydney í Ástralíu, þar sem ársfundur alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA)
fer fram, að Airbus A350-1000ULR væri að fara á teikniborðið.
„Við vitum hvaða við getum gert við Airbus A350-900 þotuna sem hefur nú þegar verið útfærð sem langdrægasta farþegaþota
heims og við erum einnig að skoða hvaða möguleikar standa til boða með -1000 tegundina“, segir Schulz.
Airbus A350-1000 tekur um 10% fleiri farþega en Airbus A350-900 þotan og hefur hún samt sem áður næstum
sama flugdrægi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.