flugfréttir

Hætta með nýja flugleið þremur vikum eftir fyrsta flugið

- Ætla einnig að hætta við flug frá Birmingham til Toronto

8. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:21

Airbus A321neo þota Primera Air

Primera Air hefur ákveðið að hætta að fljúga milli Birmingham og Newark-flugvallarins í Bandaríkjunum en ekki er mánuður liðinn frá því félagið byrjaði að fljúga þessa flugleið.

Fyrsta flugið frá Birmingham til Newark var flogið þann 18. maí sl. og hefur félagið flogið þessa leið sex sinnum í viku með Boeing 757 þotum sem félagið tók á leigu frá National Airlines þar sem seinkun hefur orðið á afhendingum á nýjum Airbus A321neo þotum.

Andri Már Ingólfsson, framkvæmdarstjóri Primera Air, segir að seinkanir á afhendingum á fleiri Airbus A321neo þotum hafi haft mun meiri áhrif á áætlanir félagsins um flug yfir Atlantshafið frá Bretlandi en gert var ráð fyrir og þar af leiðandi var sú ákvörðun tekin að hætta að fljúga til Newark frá Birmingham þann 21. júní næstkomandi.

Þá hefur Primera Air einnig hætt við að hefja flug frá Birmingham til Toronto en það flug átti að hefjast þann 23. júní.

Primera Air hefur í dag fengið tvær Airbus A321neo þotur afhentar en samkvæmt áætlun þá ætti félagið að vera komið með fjórar þotur í flotann.

Til að koma til móts við röskunina þá tók félagið á leigu eina Boeing 757-200 þotu frá National Airlines og eina Boeing 767 breiðþotu frá euroAtlantic Airways.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga