flugfréttir

Fyrstu A380 risaþoturnar á leið í niðurrif fyrir varahluti

- Ekki tókst að finna nýjan leigjanda

8. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:01

Ein af þeim tveimur Airbus A380 risaþotum sem Singapore Airlines skilaði til baka í júní í fyrra

Tvær Airbus A380 risaþotur, sem voru áður í flugflota Singapore Airlines, verða á næstunni rifnar niður í varahluti og verður það í fyrsta sinn sem risaþota fer í niðurrif.

Risaþoturnar voru í 10 ár í flugflota Singapore Airlines sem skilaði þeim til baka í fyrra til eigandans sem er þýska fyrirtækið Dr. Peters Group en Singapore Airline ákvað að framlengja ekki leigusamningnum á vélunum tveimur sem voru teknar á leigu til 10 ára.

Ekki hefur tekist að finna nýjan leigjanda fyrir risaþoturnar tvær og var því ákveðið að þær verða rifnar í sundur svo hægt sé að nýta þær í varahluti.

Báðum risaþotunum var flogið í júní 2017 til Tarbes-flugvallarins í suðurhluta Frakklands þar sem þær hafa verið í geymslu í eitt ár.

Ákvörðunin um að rífa þoturnar í varahluti þykir endurspegla hversu erfitt er að finna flugfélög sem hafa þörf fyrir risaþotuna Airbus A380 og þann litla markað sem er fyrir notaðar risaþotur.

„Eftir mjög mikla leit og stífar samningaviðræður við flugfélög á borð við British Airways, HiFly og Iran Air þá hefur Dr. Peters Group ákveðið að selja flugvélarnar í varahluti“, segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu.

Risaþoturnar tvær eru báðar aðeins 11 ára gamlar

„Þetta er mjög slæmt fyrir Airbus en þetta er jafnframt mjög stór þota og markaður fyrir notaðar þotur af þessari stærð er mjög lítill“, segir Howard Wheeldon, breskur markaðssérfræðingur í flugmálum.

Risaþoturnar tvær verða þó ekki rifnar niður til grunna þar sem einungis íhlutir verða fjarlægðir á borð við hjólastell, hreyfla og aðra parta sem hægt er að taka af án þess að eyðileggja skrokkinn sjálfan en nú þegar er búið að fjarlægja hreyflanna og leigja þá til Rolls-Royce.

Airbus segir þrátt fyrir þetta þá ríki bjartsýni um að Airbus A380 risaþotan eigi eftir að verða eftirsóttari á næstu árum þegar flugfélög sjá fram á þann vanda að erfitt verður að fá afgreiðslutíma á flugvöllum vegna þrengsla sem hægt er að leysa með því að draga úr tíðni flugferða og senda risaþotur sem taka fleiri farþega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga