flugfréttir

Rússar vilja endurvekja smíði á Antonov An-124

- Telja sig geta hafið framleiðsluna án aðkomu Úkraínu

8. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 10:47

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rússar vilja smíða þotu á borð við Antonov An-124 en núna vilja þeir smíða nánast sömu flugvél án aðkomu Úkraínumanna

Rússar vilja hefja framleiðslu á ný á risafraktþotunni Antonov An-124 sem framleidd var á tímum Sovíetríkjanna og segja að slíkt sé möguleiki fyrir þá án aðkomu Úkraínumanna.

An-124 frakþotan, sem er Íslendingum vel kunn þar sem hún hefur oft haft viðkomu á Keflavíkurflugvelli, var smíðuð á níunda áratugnum af úkraínska flugvélaframleiðandanum Antonov en Rússar telja sig eiga framleiðsluréttinn fyrir þotunni og segir rússneski flugherinn að An-124 sé ekki eign Úkraínu.

Aleksey Rogozin, varaforstjóri rússnesku flugvélaverksmiðjunnar United Aircraft Corporation (UAC), segir það mjög stórt verkefni að ætla að hefja framleiðslu á Antonov An-124 á ný en samt alls ekki útilokað.

„Það er mjög mikil eftirspurn eftir stórum fraktþotum á borð við An-124 út um allan heim. Tæp 70 prósent af vélunum voru smíðaðar í Rússlandi á sínum tíma en í dag er aðeins í forgangi að viðhalda lofthæfni þeirra og þjónusta þær“, segir Aleksey.

55 eintök voru smíðuð af Antonov An-124 fraktþotunni

Ef ákveðið verður að hefja framleiðslu á þotunni á ný þá er talið að þotan yrði smíðuð undir nýju nafni og kæmi hún með ný stjórntæki, nýja hreyfla ásamt öðrum búnaði sem væri sá nýjasti á markaðnum en hönnunin myndi samt byggja á Antonov An-124.

Antonov An-124 flaug sitt fyrsta flug í desember árið 1982 og voru 55 eintök smíðuð til ársins 2004.

„Ég tel fulla ástæðu að skoða möguleika á að framleiða Antonov An-124 á ný og auðvitað mun hún fá nýtt nafn. Þetta verður ný flugvél, framleidd í Rússlandi og hönnuð af okkar verkfræðingum og hönnuðum“, segir Viktor Bondorev, yfirmaður innan rússneska hersins.

Bondorev bendir á að verksmiðjur UAC í Ulyanovsk í Rússlandi hafi nægt pláss til að smíða þotuna og hafi Rússar alla þá þekkingu og kunnáttu sem til þarf.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga