flugfréttir

Verkföll flugumferðarstjóra meira áhyggjuefni en olíuverð

9. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 09:38

Willie Walsh, framkvæmdarstjóri International Airlines Group (IAG)

Willie Walsh, framkvæmdarstjóri IAG, móðurfélags British Airways, segir að endalausar verkfallsaðgerðir meðal flugumferðarstjóra sé mun meira áhyggjuefni fyrir flugfélög í Evrópu heldur en hækkandi verð á þotueldsneyti.

Flest flugfélög í heiminum hafa dregið úr afkomuspá sinni fyrir árið 2018 vegna verðs á eldsneyti sem hefur farið hækkandi en Walsh segir að fyrir evrópsk flugfélög þá geti verkföll meðal flugumferðarstjóra haft mun verri áhrif þar sem það sé mjög kostnaðarsamt fyrir félögin að þurfa að aflýsa flugferðum.

„Hvað varðar Evrópu þá eru verkföll meðal flugumferðarstjóra það sem hefur mest áhrif á afkomu og allt umverfið sem snýr að flugumferðarstjórnun sem er í rugli eins og er“, sagði Walsh á árlegri ráðstefnu CAPA sem fram fór í Sydney í Ástralíu.

Samtök flugfélaga í Evrópu (A4E) telja að verkföll flugumferðarstjóra og mannekla í flugumferðarstjórnun hafi kostað flugfélögin um 1.659 milljarða króna frá árinu 2010 til ársins 2017.

„Þetta er gríðarlegt áhyggjuefni og við héldum að þetta myndi lagast árið 2018 en þetta hefur farið versnandi“, segir Walsh en þess má geta að Ryanair þurfti að aflýsa 1.000 flugferðum í maí vegna verkfallsaðgerða samanborið við 43 flugferðir sem féllu niður í maí árið 2017.

Frakkland hefur komið verst út en flestar verkfallsaðgerðir meðal flugumferðarstjóra í Evrópu koma að hálfu Frakka en flugvélar á vegum British Airways, Iberia, Vueling og Aer Lingus hafa margar þurft að eyða mun meira eldsneyti þar sem þær hafa oft þurft að taka á sig krók til að forðast franska lofthelgi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga