flugfréttir
Þota Icelandair í íslensku fánalitunum fær mikla athygli
- Þingvellir (TF-ISX) er önnur Boeing 757-300 þota Icelandair
TF-ISX lenti í gærkvöldi í Keflavík eftir málningarvinnu sem fram fór hjá Air Livery í Norwich á Englandi / Ljósmynd: Sigurjón Hafsteinsson
Það er fátt sem íslenskir flugáhugamenn hafa rætt meira síðasta sólarhringinn en nýju Boeing 757-300 þotuna sem bæst hefur í flota Icelandair í sérstökum litum í tengslum við 100 ára fullveldi Íslands.
Icelandair fékk fyrstu Boeing 757-300 þotuna í mars árið 2002 en sú flugvél hefur í 16 ár verið eina 757-300 þotan í flotanum.
TF-FIX bar nafnið Snorri Þorfinnsson en fyrir nokkrum árum síðan var nafninu breytt í Hengill er félagið
breytti nöfnum flugvélanna úr „dísunum“ og nefndi flugvélarnar eftir íslenskum eldfjöllum.
Icelandair tilkynnti í desember í fyrra að félagið hefði gengið frá kaupum á annarri Boeing 757-300 þotu
sem er TF-ISX en vélin kemur úr flota ísraelska flugfélagsins Arkia Israel Airlines.
TF-ISX var smíðuð árið 2000 og var upphaflega í flota Sun d´Or International Airlines en fór yfir
til Arkia Israel Airlines árið 2002.
Þessi ljósmynd er núna meðal vinsælustu myndanna á flugvefnum Airliners.net
Vélin kom til Íslands í febrúar og hefur hún gengist yfir yfirhalningu hjá Icelandair Technical Service
en á dögunum var vélinni flogið til Norwich á Englandi þar sem hún var máluð í sérstökum litum
í tilefni að 100 ára fullveldis Íslands.
TF-ISX lenti á Keflavíkurflugvelli í gær um hálfsexleytið eftir flug frá Norwich og voru ljósmyndir af vélinni
ekki lengi að breiðast út eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla meðal flugáhugamanna og þá sérstaklega á Fésbókar-hópnum Fróðleiksmolar um flug.
Þingvellir í flugtaki í gær á flugvellinum í Norwich á leið til Keflavíkur
TF-ISX, sem hefur fengið nafnið „Þingvellir“, mun fara í áætlunar- og leiguflug og fer hún í leiðarkerfi Icelandair
á næstu dögum en hún mun einnig fljúga til Rússlands í tengslum við Heimsmeistarakeppnina í fótbolta
sem hefst þann 14. júní.
Svo má segja að lengri útgáfan af Boeing 757 sé ekki á hverju strái en aðeins voru 55 eintök
af 757-300 framleiddar á sínum tíma og eru þær allar enn í notkun hjá flugfélögunum og hefur ekki
eitt einasta eintak af þeim endaði í geymslu eða í niðurrifi.
Fyrir utan Icelandair eru aðeins fimm flugfélög sem hafa Boeing 757-300 í flotanum en þau er Arkia,
Thomas Cook, Delta Air Lines, Condor og United Airlines.
Fleiri myndir af TF-ISX
Þá var ekki lengi verið að því að búa til nýju litina fyrir X-Plane flugherminn fyrir PC og iMac
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.