flugfréttir

Flugvélar frá Diamond sækja í sig veðrið víða um heim

- Kínverjar ætla að auka umsvif Diamond-flugvélanna í Asíu og víðar

11. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 21:58

Verksmiður Diamond Aircraft

Flugvélaframleiðandinn Diamond Aircraft er í þann mund að taka stórt skref inn á heimsmarkaðinn er kemur að markaðsetningu á Diamond flugvélunum en kínverska fyrirtækið Wanfeng Aviation keypti 60 prósenta hlut í Diamond Group árið 2016.

Kaupin hafa styrkt stöðu Diamond Aircraft til muna á heimsvísu og er unnið að öflugri stefnumótun til framtíðar fyrir flugvélarnarnar en Diamond DA20, DA40 og hin tveggja hreyfla DA42 hafa notið mikilla vinsælda sem kennsluflugvélar víða um heim.

„Við lítum ekki aðeins á kaupin sem eitthvað viðskiptatækifæri. Heldur erum við komnir til að vera“, segir Frank Zhang, framkvæmdarstjóri Wanfeng Aviation.

Nýju eigendurnir hafa þegar unnið að hagræðingum innan Diamond Aircraft og þar á meðal er búið að sameina stjórnir höfuðstöðvanna tveggja í Austurríki og í Kanada í eitt teymi.

Verksmiðjur Diamond í London í Kanada

Þá hafa umsvifin verið aukin í markaðsetningu í Asíu og er þegar búið að selja margar Diamond-flugvélar til Kína í gegnum kínversk fyrirtæki.

Zhang segir mikil tækifæri leynast í Kína þar sem gríðarleg eftirspurn sé eftir kennsluflugvélum í kínverskum flugskólum þar sem flugiðnaðurinn í landinu er sífellt að stækka.

Fram kemur að markmiðið sé að setja kröfur viðskiptavina í forgang og hlusta á þarfir þeirra þar sem það má alltaf bæta ýmsa hluti er kemur að þjónustu og framleiðslu á Diamond-flugvélunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga