flugfréttir
Ryanair mun hefja flug um London Southend flugvöll
- Fljúga til 13 áfangastaða frá Southend-flugvelli
Boeing 737-800 þota Ryanair
Ryanair ætlar sér að gera London Southend flugvöllinn að einni að bækistöð sinni sem verður þriðja starfsstöð flugfélagsins í London á eftir London Stansted og London Luton.
Ryanair ætlar að byrja með þrjár Boeing 737-800 þotur sem verða staðsettar á London Southend frá og með
næsta vori en í apríl 2019 ætlar félagið að hefja flug til þrettán áfangastaða frá flugvellinum.
Áfangastaðirnir eru Mallorca, Cluj í Rúmeníu, Bilbao, Alicante, Brest, Corfu, Dublin, Faro, Malaga, Reus, Mílanó, Feneyjar
og Kosice í Póllandi.
EasyJet mun veita Ryanair töluverða samkeppni í flugi til og frá London Southend þar sem það flugfélag
mun hefja flug til fimm flugvalla á næstu mánuðum en Flybe hefur í dag mestu umsvifin á London Southend.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.