flugfréttir
Mótmæltu úrslitum kosninga og kveiktu í flugvél
Lögregla reyndi að stöðva mótmælendurnar eftir að þeir höfðu skotið á dekkin á vélinni en án árangurs
Farþegaflugvél af gerðinni de Havilland DHC-8 202Q Dash 8 brann til kaldra kola á flugvellinum í Mendi í Papúa-Nýju Gíneu eftir að reiðir mótmælendur, sem voru óánægðir með úrslit úr sveitastjórnarkosningum í landinu, báru eld að flugvélinni.
Sjónarvottar segja að hópur mótmælenda hafi gengið berserskgang eftir að úrslitin voru ljós
með sigri William Pow, sem mun leiða fyrsta sætið Suður-Hálandahéraðið í landinu næstu árin, og farið hamförum í bænum.
Mótmælendurnir fóru víða, kveiktu í öllu sem brunnið gat og ruddu sér leið inn á flugvöllinn í Mendi
þar sem þeir skutu skotum á dekk á Dash 8 flugvél frá Air Niugini og báru því næst eld að vélinni.
Flugvélin, sem bar skráninguna P2-ANX, var smíðuð árið 1997
Verið var að undirbúa flugvélina fyrir áætlunarflug til Port Moresby en í yfirlýsingu frá Air Niugini kemur fram
að áhöfninni og farþegum hafi tekist að yfirgefa flugvélina í tæka tíð og sakaði engann.
Deilur um hvaða embættismaður taki við stjórninni í héraðinu í kjölfar kosningana hafa þegar kostað
mannslíf vegna óeirða sem hafa brotist út en ríkisstjórnin í Papúa Nýju-Gíneu segir að lýst verði yfir
neyðarástandi í landinu vegna ástandsins.
Spennan í landinu hefur stigmagnast og hefur utanríkisráðuneytið í Ástralíu ráðlagt fólki frá því að ferðast til vissra svæða í Papúa-Nýju Gíneu eins og staðan er í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.