flugfréttir

Heathrow verður stækkaður

- Þriðja brautin samþykkt á breska þinginu með 415 atkvæðum gegn 119

26. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:36

Frá Heathrow-flugvellinum í London

Ríkisstjórn Bretlands hefur kosið með stækkun Heathrow-flugvallarins með þriðju flugbrautinni í kjöri þingamanna sem fram fór í gærkvöld.

Chris Grayling, samgönguráðherra Breta, segir að þetta sé endanlegt grænt ljós á að þriðja flugbrautin verði framkvæmd á Heathrow og kallar hann þetta stærstu ákvörðun sem ríkisstjórnin hefur tekið í samgöngumálum.

Alls voru 415 sem kusu með stækkun Heathrow-flugvallarins á móti 119 þingmönnum sem kusu gegn stækkuninni en kosningin fór fram klukkan 22:00 í gærkvöldi eftir þriggja tíma kappræður sem fram fóru á undan.

Kosningin þykir binda endi á pólitískar deilur sem staðið hafa yfir í fleiri áratugi innan ríkisstjórnarinnar en í framhaldinu verður hægt að leggja drög að framkvæmdunum sem munu hlaupa á milljörðum.

Ávinningurinn er hinsvegar talinn vera gríðarlegur þar sem stækkun vallarins mun stórefla allt efnahagslíf Breta og þá sérstaklega á Lundúnar-svæðinu.

Framkvæmdirnar við þriðju flugbrautina munu kosta rúma 1.900 milljarða króna

Talið er að fljótlega verður hafist handa við að gera fjárhagsáætlun varðandi framkvæmdirnar sem eiga að hefjast árið 2021 og gert er ráð fyrir að á næstu tólf mánuðum verði framkvæmdirnar boðnar út en þær munu skapa um 900 ný störf.

„Breska þingið hefur bundið endi á 50 ára langar deilur varðandi stækkun Heathrow-flugvallarins. Niðurstaðan mun þýða hundruði nýrra starfa. Við erum mjög þakklát ríkisstjórninni fyrir að taka rétta ákvörðun fyrir Bretland. Frá og með deginum í dag verður hafist handa við að gera Bretland að bestu tengimiðstöð í heimi í flugsamgöngum“, segir John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga