flugfréttir
Flugmenn Ryanair á Írlandi boða til verkfalls
Þeir flugmenn hjá Ryanair, sem starfa á Írlandi, boða til verkfallsaðgerða þann 12. júlí
Írskir flugmenn, sem fljúga fyrir Ryanair og þeir flugmenn félagsins, sem eru búsettir á Írlandi, hafa boðað til verkfallsaðgerða í einn sólarhring þann 12. júlí næstkomandi.
Með þessu vilja flugmenn félagsins mótmæla því hvernig staðið er að samgöngum milli bækistöðva félagsins er flugmenn
eru fluttir til annarra flugvallar sem þeir segja að bitni illa á fjölskyldulífinu.
Félag írskra atvinnuflugmanna segir að stjórn Ryanair taki þeim ekki alvarlega en alls voru 99% flugmanna
sem kusu með verkfallsaðgerðunum sem munu kosta tafir og seinkanir fyrir þúsundir farþega.
Verkfallið mun koma sér sérstaklega illa fyrir þá farþega sem fljúga til og frá Norður-Írlandi þar sem 12. júlí
markar upphaf að þjóðlegu sumarfrí þar í landi.
Verkfallsaðgerðirnar bætast ofan á röð aflýstra flugferða sem felldar voru niður í júní vegna verkfallsaðgerða
meðal flugumfeðrarstjóra og manneklu í Bretlandi, Frakklandi og í Þýskalandi.
Alls þurfti Ryanair að aflýsa 1.100 flugferðum í júní sem bitnaði á 210.000 farþegum en til að mynda var aðeins 41 flugferð
aflýst hjá Ryanair í júní 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.