flugfréttir

Farþegar beðnir um að bóka bílastæði á Netinu vegna veðurs

- Mæta fyrr í innritun ef flugið er á álagstímum

5. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:23

Farþegum er bent á að huga að því að mæta fyrr í innritun ef þeir eiga flug bókað á álagstímum

Keflavíkurflugvöllur ráðleggur farþegum að bóka bílastæði í tæka tíð á Netinu nú þegar hápunktur sumarvertíðarinnar tekur við í júlí og í ágúst.

Í fréttatilkynningu frá Isavia kemur fram að álagstímabilið sé hafið í flugstöðinni og ef marka má umræðuna um sumarveðrið á stórum hluta landsins má ætla að töluvert verði um að Íslendingar leggi í ferðalög til útlanda í júlí og ágúst.

Það má því búast við því að bílastæði við flugvöllinn verði þétt setin á næstu vikum en til þess að tryggja sér bílastæði eru farþegar hvattir til að bóka bílastæði á netinu fyrir brottför.

Bókunarkerfi á nýjum vef Isavia var tekið í gagnið fyrr á þessu ári en þar er hægt að tryggja sér bílastæði á sama tíma og ferð er bókuð og þá á betri kjörum en þegar greitt er við hlið. Bókunarkerfi fyrir bílastæði í KEF má finna hér.

Gott að mæta tímanlega út á flugvöll

Farþegum er bent á að huga að því að mæta fyrr í innritun ef þeir eiga flug bókað á álagstímum en álagstoppar við brottför frá Keflavíkurflugvelli eru á morgnana á milli 6:00-8:30 og í eftirmiðdaginn á milli kl. 15:00-17:30.

Að auki er vert að benda á að mest er umferðin á fimmtudögum og sunnudögum. Við bendum farþegum sem eiga flug bókað á þessum tímum að vera mættir 2-3 tímum fyrir brottför. Mismunandi er hvenær flugfélög opna fyrir innritun en almennt er það um 2-3 klukkustundum fyrir brottför.

Þá er bent á sjálfsafgreiðslustöðvar í flugstöðinni þar sem farþegar geta sjálfir innritað sig auk þess sem hægt er að skila töskum við sjálfsinnritunarborð sem eru alltaf opin.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga