flugfréttir

Drap óvart á báðum hreyflum rétt fyrir lendingu

- Talið að annar flugmannanna hafi óvart rekist í „Shutoff / Idle“ handfangið

7. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:15

Atvikið átti sér stað á flugvellinum í kínversku borginni Tongliao þann 4. júlí sl.

Talið er að flugmenn á kínverski farþegaþotu hafi gert mistök er þeir slökktu óvart á hreyflum á farþegaþotu af gerðinni Canadair CRJ-900 er þotan var við það að lenda í innanlandsflugi í Kína.

Þotan, sem var á vegum China Express Airlines, fór í loftið frá borginni Hohhot þann 4. júlí sl. og var að byrja að „flera“ í 30 fetum yfir flugbrautinni í Tongliao þegar aflið fór af báðum hreyflum þotunnar.

Flugmálayfirvöld í Kína telja að annar flugmaðurinn hafi verið að draga af aflið niður á „Idle“ þegar vélin var að „flera“ en óvart rekist í handföng á eldsneytisinngjöfinni sem notuð er til þess að drepa á hreyflunum að loknu flugi.

Vélin lenti á brautinni án afls og vegna þessa virkuðu bremsurnar ekki sem skildi auk þess sem „anti-skid“ búnaðurinn var ekki virkur. Þar að auk sprungu öll fjögur dekkin í lendingunni á báðum aðalhjólastellunum.

Í kjölfarið hefur China Express Airlines beðið alla flugmenn félagsin um að halda ekki neðarlega utan um inngjöfina þegar verið er að bæta við eða auka aflið.

Flugvélin staðnæmdist á flugbrautinni og þurfti að rýma vélina á staðnum en engan sakaði af þeim 85 farþegum sem voru um borð auk átta áhafnarmeðlima.

Örrygistilkynning til flugmanna frá félaginu

Flugfélagið gaf út öryggistilkynningu sem segir m.a. að á meðan á flugi stendur skuli aldrei eiga við inngjöfina með því að setja hendurnar annars staðar en ofan á handfangið sjálft.

Þá verður beðið með alla þjálfun frá og með 31. júlí nk. (nema þjálfun flugstjóra) þar til rannsókn hefur farið fram þar sem stuðst verður við hljóðupptöku úr stjórnklefa.

Flugmenn eru einnig hvattir til þess að fara alltaf eftir stöðluðum verklagsreglum (SOP) og víkja ekki út frá þeim og að lokum var sent út stutt kynningarmyndband sem fer ítarlega í starfrækslu á inngjöfinni á Canadair CRJ900 þotunum.

Teikning af inngjöfinni á Canadair CRJ900 þotunni







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga